Forsvarsmenn UN Women á Íslandi heimsóttu vísindamenn systurfyrirtækjanna Alvogen og Alvotech í nóvember. Þær Stella Samúelsdóttur, framkvæmdastýra og Mörtu Goðadóttur, kynningarstýra kynntu samstarf samtakanna við Alvogen og sögðu frá ferð samtakanna til Za´atari flóttamannabúðanna.
Sendinefndin fékk tækifæri til þess að ræða við fjölmargar konur í flóttamannabúðunum sem sögðu sögu sína og frá þeim slæmu aðstæðum sem þær búa við. Um 80.000 manns frá Sýrlandi hafast við í flóttamannabúðunum við bágan kost en búðirnar eru þær næststærstu í heiminum.
Alvogen er bakhjarl UN Women og kostaði ferð samtakanna til búðanna og framleiðslukostnað við gerð myndbanda sem nýst hafa í söfnunarátaki UN Women á Íslandi.
Vísindamenn systurfyrirtækjanna Alvogen og Alvotech lögðu einnig sitt af mörkum og með þeim fjármunum sem söfnuðust innan fyrirtækisins voru keyptir yfir 200 mömmupakkar fyrir nýbakaðar mæður í Za´atari. Um 80 börn fæðast í hverri viku í flóttamannabúðunum og pakkarnir innihalda burðarrúm, hlý ungbarnaföt og ullarsjal fyrir nýbakaðar mæður.
Hildur Hörn Daðadóttir, starfsmannastjóri á Íslandi sagði ánægjulegt að fá tækifæri til að leggja þessu málefni lið.