Nýtt Hátæknisetur systurfyrirtækjanna Alvogen og Alvotech opnar formlega í dag við hátíðlega athöfn. Framkvæmdir við byggingu hússins innan Vísindagarða Háskóla Íslands hófust í nóvember 2013 og er nú að ljúka. Innan setursins verður unnið að þróun og framleiðslu líftæknilyfja sem væntanleg eru á markað á næstu árum. Þau lyf sem nú eru í þróun eru háþróuð stungulyf sem meðal annars eru notuð við meðferð krabbameins- og gigtarsjúkdóma.
Lyfjafyrirtækið Alvogen hóf starfsemi á Íslandi árið 2010 og nú starfa um 160 háskólamenntaðir sérfræðingar hjá systurfyrirtækjunum hér á landi. Heildarfjárfesting Alvotech á sviði líftæknilyfja verður um 500 milljónir evra (75 milljarðar króna) á næstu árum, þar með talin fjárfesting á fullbúnu húsi (um 8 milljarðar króna). Stærsti hluti fjárfestingar fyrirtækisins er vegna þróunar- og rannsóknarkostnaðar og klínískra rannsókna. Alls sköpuðust um 350 ársverk á byggingatíma hússins og fjölmörg framtíðarstörf munu skapast til viðbótar við þau 160 sem nú þegar hafa orðið til.
Hátæknisetrið var hannað af færustu innlendu og erlendu sérfræðingum á sínu sviði. Má þar nefna alþjóðlega ráðgjafafyrirtækið M&W, PK arkitekta, Lagnatækni, verkfræðistofurnar Eflu og Verkís, auk ÞG verktaka sem stýrðu framkvæmdum.
Sex líftæknilyf eru nú í þróun hjá Alvotech í samvinnu við erlenda samstarfsaðila og fyrstu lyf fyrirtækisins eru væntanleg á markað árið 2019 þegar einkaleyfi renna út. Frumlyf þeirra lyfja sem fyrirtækið mun þróa og framleiða eru nú þegar á markaði og í hópi stærstu lyfja á heimsvísu. Áætlað söluverðmæti þeirra er um 15 milljarðar evra á ári. Alvotech, í samstarfi við Alvogen og önnur lyfjafyrirtæki, stefnir að því að vera í hópi fyrstu fyrirtækja á markað með hliðstæðulyf (biosimilars) þegar einkaleyfi þeirra renna út.