Quetiapin Alvogen
Quetiapin Alvogen inniheldur virka efnið quetiapin. Það tilheyrir flokki lyfja sem nefnast geðrofslyf. Quetiapin er óhefðbundið geðrofslyf. Quetiapin og virka umbrotsefnið í plasma hjá mönnum, norquetiapin, milliverka við ýmsa viðtaka taugaboðefna. Quetiapin og norquetapin hafa sækni í serótónínviðtaka (5HT2) og dópamín D1 og D2 viðtaka í heila. Þessi samsetning á viðtakablokkun með meiri sækni í 5HT2 en D2 viðtaka er talin eiga þátt í klínískt sefandi eiginleikum quetiapins og lágri tíðni utanstrýtu (extrapyramidal) aukaverkana samanborið við dæmigerð geðrofslyf
Ábendingar:
Quetiapin er ætlað sem:
- Meðferð við geðklofa.
- Meðferð við geðhvarfasýki:
- Meðferð við miðlungi miklum til alvarlegum oflætislotum í geðhvarfasýki.
- Meðferð við alvarlegum þunglyndislotum í geðhvarfasýki.
- Til að fyrirbyggja endurkomu oflætis- eða þunglyndislotu hjá sjúklingum með geðhvarfasýki sem hafa áður svarað meðferð með quetiapini. - Viðbótarmeðferð við alvarlegum þunglyndislotum hjá sjúklingum með alvarlegt þunglyndi (Major Depressive Disorder [MDD]) sem ekki hafa svarað nægilega vel meðferð við þunglyndi með einu lyfi. Áður en meðferð hefst skulu læknar hafa öryggi notkunar quetiapins í huga.
Frábendingar:
- Ofnæmi fyrir virka efninu eða einhverju hjálparefnanna.
- Ekki má nota cytochrom P450 3A4 hemla, svo sem HIV-próteasa hemla, azól sveppalyf, erythromycin, clarithromycin og nefazodon, samhliða quetiapini
Markaðsleyfishafi: Alvogen ehf.
Ítarupplýsingar
- Tegund lyfs
- N05A -GEÐROFSLYF (ANTIPSYCHOTICS)
- Virkt innihaldsefni
- Quetíapín
- Lyfjaform
- Forðatöflur
- Styrkleiki
- 50, 200, 300 mg
- Magn
- 100 stk.
Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá