Aðrar vörur

PoxClin Coolmousse

PoxClin og KidsClin eru gæða merki frá sænska framleiðandanum Karo Pharma. 

PoxClin CoolMousse er kælandi líkamsfroða sem dregur úr óþægindum af völdum hlaupabólu. Má einnig nota til að minnka óþægindi sem stafa af útbrotum, skordýrabitum og ofnæmi.

  • Dregur samstundir úr kláða, sviða og ertingu í húðinni.
  • Kælir, róar og veldur vellíðunartilfinningu í húðinni.
  • Styður við náttúrulegan sáragróanda húðarinnar.
  • Hjálpar að koma í veg fyrir að börn klóri sér og valdi skemmdum á húðinni.
  • Inniheldur eingöngu náttúruleg innihaldsefni.
  • Fyrir börn frá 0 ára aldri.

Notkunarleiðbeiningar: Berist mjúklega á húð minnst þrisvar á dag eða eftir þörfum við óþægindum í húð. Einungis til útvortis notkunar. Má nota á skaddaða húð. Geymist í ísskáp til að auka kæliáhrif!

Lækningatæki í flokki IIa.

Innihaldslýsing: vatn, útdráttur úr Aloe Barbadensis, galaktóarabínan, fjölliða úr glúkúrónsýru*, betaín, laureth-9, PEG-40 hert laxerolía, glýserín, natríum coco-glúkósíði, tartarat, pólýglýserýl-10 laurat, fenoxýetanól, etýlhexýlglýcerín, pantenól, allantóín, sítrónusýra, natríum hýdroxíð. *2QR

Varnarorð:
Ef froðan kemst í snertingu við augu skal skola strax með vatni. Ef ertingin verður viðvarandi skaltu hafa samband við lækni.
Ekki nota vöruna ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna

Hvað er hlaupabóla?

Hlaupabóla er sjúkdómur sem orsakast af veirunni Varicella-Zoster.

Sjúkdómurinn varir í um 7-10 daga hjá börnum og lengur hjá fullorðnum.

Yfirleitt er sjúkdómurinn vægur og einkennist af útbrotum, einkum á bol og í andliti. Oft verður vart við slappleika og vægan hita í 1-2 daga áður en útbrot koma fram. Hitinn varir áfram í 2-3 daga samhliða útbrotunum. Útbrotin byrja sem litlar rauðar bólur sem verða að vessafylltum blöðrum. Önnur einkenni eru höfuðverkur, lystarleysi og særindi í hálsi.

Útbrotunum fylgir oft mikill kláði og hætta er á að bakteríusýking berist í þau.

Hlaupabóla er mjög smitandi sjúkdómur.

PoxClin fæst í næsta apóteki

POX.001.02