Neilner - meðferð við naglasvepp

Nailner 2in1 Pensill

Nailner naglapensillinn bætir útlit naglanna hraðar en aðrar meðferðir. Einnig styrkir Nailner nöglina sem minnkar líkur á endursmiti.

VIRKNI: 

Meðhöndlar naglasvepp og gefur sýnilegan árangur á aðeins 7 dögum.

HVERNIG VIRKAR NAILNER?
Tvöföld verkun:

Etýl laktat (e. ethyl lactate): mettar nöglina með áhrifaríku flutningskerfi (e. carrier system) sem flytur virk innihaldsefni Nailner að rót vandans; sveppnum.

Mjólkursýra (e. lactic acid): Lækkar pH-gildi naglarinnar og skapar þar með ólífvænlegt umhverfi fyrir sveppi.

ANNAÐ LYKILATRIÐI
Nailner inniheldur rakagefandi innihaldsefni sem koma í veg fyrir skemmdir í nöglum.

NOTKUNARLEIÐBEININGAR:  

Meðhöndla skal tvisvar á dag fyrstu 4 vikurnar. Eftir það skal bera lakkið á sýktar neglur einu sinni á dag þar til sýktar neglur hafa vaxið fram og eru heilbrigðar.

Pensillinn gefur ca 300 umferðir.

  • Sýnilegur árangur eftir 7 daga meðferð
  • Styrkir nöglina sem minnkar líkur á endursmiti
  • Bætir útlit naglanna hraðar en aðrar meðferðir

HELSTU INNIHALDSEFNI:

Etýl laktat -  Flutningskerfi.
Mjólkursýra - 
Lækkar pH gildi, kemur í veg fyrir vöxt og fjölgun sveppa.
Glýserín - 
Rakagefandi, kemur í veg fyrir sprungur og skemmdir.
2,2-Díhýdroxýacetófen - 
Birtir og hvíttar neglurnar. Gerir árangur sýnilegan fljótt.
Sítrónusýra - 
Lækkar og stillir pH-gildi.

VARNARORÐ:

  • Nailner er aðeins ætlað til notkunar útvortis
  • Notaðu ekki vörurnar ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna
  • Hafðu samband við lækni áður en vörurnar eru notaðar ef þú ert með sykursýki, lélegt blóðflæði, ófrísk eða með barn á brjósti
  • Forðist að bera á húð í kringum nögl
  • Forðastu snertingu við augu og slímhúð, skolaðu vel með vatni ef það gerist
  • Hafðu samband við lækni ef ástandi lagast ekki eða versnar
  • Forðist beint sólarljós eftir lökkun
  • Geymist þar sem börn hvorki ná til né sjá

Nailner fæst í næsta apóteki

NAI.B.001.01