SureSign

SureSign - þungunarpróf - stautar

Þungunarpróf sem mælir styrk þungunarhormóns (hCG) í þvagi og þar með hvort þungun hafi átt sér stað með 99% nákvæmni. Hægt er að kaupa pakka með einu prófi og tveimur prófum.

  • Einfalt í notkun og aflestri.
  • Niðurstöður fást á um 3 mínútum.
  • Hentugt þar sem hægt er að taka prófið á öllum tímum sólarhrings en morgunþvagið gefur oft skýrustu niðurstöðuna.

Varnarorð:

Mikilvægt: lestu niðurstöður innan 10 mínútna. Eftir þann tíma ættir þú að líta framhjá öllum breytingum á niðurstöðum eða línum sem birtast eftir þann tíma.

Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.

Aðeins til in vitro greiningar.

Ekki til inntöku.

Ekki borða þurrkefnið í pakkningunni.

Þungunarprófið er ekki hægt að nota aftur.

Ekki opna pokann sem inniheldur prófið fyrr en þú ert tilbúin að taka prófið.

Ekki nota ef pokinn er rifinn eða skemmdur.

Fargaðu í heimilissorp.

Mikilvægt er að lesa leiðbeiningar vel fyrir notkun.

Íslenskar leiðbeiningar fylgja.

SUR.S12.001.01