Locobase

Locobase PSORIASIS krem

Locobase PSORIASIS krem, 50ml.

Kortisónlaust krem til meðferðar og fyrirbyggjandi gegn einkennum sóra (psóriasis)

Klínískar rannsóknir sýna fram á virkni gegn einkennum sóra, dregur úr flögnun, roða, grófri og harðri húð. Samkvæmt rannsókn sem gerð var á sóra-sjúklingum var sýnt fram á að kremið stuðlar að marktækum árangri á sóra einkennum eftir aðeins 4 vikna notkun.

Locobase PSORIASIS kremið dregur úr hreisturmyndun á áhrifaríkan en mildan hátt. Sambland af mýkjandi og rakagefandi innihaldsefnum gefa húðinni mikinn raka og kemur á jafnvægi í húð og kemur í veg fyrir frekara rakatap.
Einstök formúla sem inniheldur Ection® sem er náttúruleg sameind hjálpar til við að draga úr bólgum, draga úr ertingu og styðja við endurnýjunarferli húðarinnar.

Klínískar rannsóknir sýna fram á að kremið dregur úr sóra einkennum eins og hreisturhúð, kláða, roða, grófleika og siggi á aðeins 4 vikum.

Ectoin® verndar húðfrumurnar, ýtir undir jafnvægi húðarinnar og veitir mikinn raka, hjálpar til við framleiðslu á nýjum húðfrumum og dregur úr bólguviðbrögðum.
Logobase PSORIASIS kremið frásogast hratt inn í húðina.

Án stera, ilmefna og rotvarnarefna.

Notkun: Fyrir fullorðna og börn og ungabörn.
Ef læknir eða annars heilbrigðisstarfsmaður hefur ekki ráðlagt annað skal bera varlega á útsetta húð 3 sinnum á dag eða eins oft og þörf krefur.

Varnarorð: Aðeins til notkunar útvortis. Ekki nota á sýkta húð. Ekki nota ef þú ert með ofnæmi fyrir Ectoin® eða öðrum innihaldsefnum vörunnar. Hættu notkun strax ef ofnæmisviðbrögð koma fram. Ráðfærðu þig við lækni ef einkenni versna við notkun vörunnar. Ekki er mælt með að nota önnur krem á sama tíma, engar upplýsingar um milliverkanir Locobase PSORIASIS og annara krema liggja fyrir.

Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá.
Ekki nota lengur en í 6 mánuði eftir opnun.
Lestu fylgiseðilinn vandlega fyrir notkun.

Locobase PSORIASIS krem er skráð lækningatæki í flokki IIa

LOC.PS.001.01