Cetirizine 10 mg
Cetirizine Alvogen
Lausasölulyf við ofnæmi og ofsakláða.
- Fæst í þremur pakkningastærðum: 30 eða 100 stk
- Ein tafla á dag
Ábending:
Cetirizin er ætlað fyrir fullorðna og börn 6 ára og eldri:
- Notað til að draga úr einkennum frá nefi og augum hjá þeim sem hafa árstíðabundið eða stöðugt ofnæmiskvef.
- Einnig til að draga úr einkennum langvinns ofsakláða af óþekktum orsökum.
Notkunarupplýsingar:
Fullorðnir og unglingar eldri en 12 ára: Ráðlagður skammtur er 10 mg, ein tafla, á dag.
Börn 6 til 12 ára: Ráðlagður skammtur er 5 mg, hálf tafla, tvisvar á dag.
Ef einstaklingur er næmur fyrir slævandi áhrifum er mælt með að taka lyfið að kvöldi til fyrir svefn.
LESIÐ FYLGISEÐILINN FYRIR NOTKUN.
Ítarupplýsingar
- Virkt innihaldsefni
- Cetirizine
- Lyfjaform
- Filmuhúðuð tafla
- Styrkleiki
- 10 mg
- Magn
- 30 og 100 stk
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
CET.L.A.2021.0007.01