Alvofen Junior 40 mg/ml

Alvofen Junior

Lausasölulyf við verkjum og hita

  • Inniheldur íbúprófen.
  • Mixtúra.
  • Frá 7 kg að líkamsþyngd (6 mánaða) til 40 kg að líkamsþyngd (12 ára).

Ábending:

  • Til skammtímameðferðar á einkennum vægra til í meðallagi slæmra verkja.
  • Til skammtímameðferðar á einkennum hita.

Lyfjagjöf: Til inntöku. Hristið flöskuna vel fyrir notkun.

Skammtar:

  • Börn 7-9 kg (6-11 mánaða): 50 mg/ 1.25 ml, 3-4 sinnum á sólarhring.
  • Börn 10-15 kg (1-3 ára): 100 mg/ 2,5 ml, 3 sinnum á sólarhring.
  • Börn 16-19 kg (4-5 ára): 150mg/ 3,75 ml, 3 sinnum á sólarhring.
  • Börn 20-29 kg (6-9 ára): 200 mg/5 ml, 3 sinnum á sólarhring.
  • Börn 30-40 kg (10-12 ára): 300 mg/7,5 ml, 3 sinnum á sólarhring.

Skammtana skal gefa á u.þ.b. 6 til 8 klst. fresti. Notkun er ekki ráðlögð fyrir börn yngri en 6 mánaða eða undir 7 kg.

Mælt er með því að sjúklingar sem eru viðkvæmir í maga taki Alvofen Junior með mat.

Aðeins til skammtímanotkunar.

Ef þörf er á notkun lyfsins lengur en í 3 daga eða ef einkenni versna skal hafa samband við lækni.

Lágmarka má aukaverkanir með því að nota lægsta virka skammt í eins stuttan tíma og hægt er til að meðhöndla einkenni

LESIÐ FYLGISEÐILINN FYRIR NOTKUN.

Ítarupplýsingar

Virkt innihaldsefni
Íbúprófen
Lyfjaform
Mixtúra
Styrkleiki
40 mg/ml
Magn
100 ml

Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.

ALJ.L.A.2025.0004.01

Sölustaðir

Fæst í næsta apóteki.