Multi-Mam
Multi-Mam Balm
Náttúrulegt smyrsli ætlað fyrir konur með barn á brjósti.
Multi-Mam Balm smyrslið verndar geirvörtusvæðið á meðan brjóstagjöf stendur:
- Veitir þurri húð raka
- Kemur í veg fyrir myndun sprungna
- Heldur geirvörtusvæðinu mjúku og heilbrigðu
INNIHALDSLÝSING
Helianthus Annuus, Butyrospermum Parkii, PEG-8, Beeswax, Squalene, Polyglyveryl-3 Ricinoleate, Propyl Gallate.
Smyrslið inniheldur olíur úr jurtaríkinu í stað ullarfeiti. Það er lyktar- og bragðlaust, auk þess sem auðvelt er að bera smyrslið á geirvörtusvæðið og það klístrast ekki.
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Þvoðu hendur og geirvörtusvæði með volgu vatni og þurrkaðu varlega. Berðu hæfilegt magn af smyrsli á geirvörtusvæðið, gott getur verið að mýkja kremið á milli fingurgóma áður en það er borið á geirvörtusvæðið.
Smyrslið má nota eins oft og þörf krefur en mælt er með að nota kremið eftir brjóstagjöf minnst tvisvar á dag. Ekki er nauðsynlegt að fjarlægja smyrslið fyrir brjóstagjöf, það er skaðlaust fyrir barnið.
Fæst í næsta apóteki og versluninni Móðurást.
ALGENGAR SPURNINGAR
- Þarf að fjarlægja smyrslið af geirvörtunum fyrir brjóstagjöf?
Nei, smyrslið er skaðlaust fyrir barnið þitt og er bragð- og lyktarlaust. Það er þó mælt með því að nota smyrslið að brjóstagjöf lokinni vegna þess að barnið getur átt erfiðara með að taka brjóst. - Hver er munurinn á Multi-Mam Balm og öðrum brjóstakremum?
Multi-Mam inniheldur olíur úr jurtaríkinu í stað ullarfeiti sem er uppistaðan í hefðbundnum brjóstakremum. Það er því góður valkostur fyrir þá sem aðhyllast grænmetisfæði auk þess að það hefur ekki þessa klístruðu áferð sem ullarfeitin hefur.